Recent Articles Recent Articles

    Síðasta úrtökumót fyrir Íslandsmeistaramótið í Hlýðni

    Síðasta úrtökumótið verður núna á sunnudaginn næstkomandi kl. 13:00. Mótið verður haldið á Planinu hjá Héðni í hfj. Dómari verður Monika Karlsdóttir og er öllum hundum óháð tegund, ættbók/ættbókarleysi og stærð velkomið að vera með.

    Það verður keppt í bæði hlýðni brons og hlýðni 1 ásamt því að við verðum með unglingaflokk í hlýðni borns. Gild einkunn í öllum æfingum veitir þátttökurétt á Íslandsmeistaramótinu í september sem og að stigin geta gilt til stigahæsta hund ársins. Veitt verða verðlaun fyrir 1. - 3. sæti í báðum greinum og er mótaröðin styrkt af Pak ehf. umboðsaðila Propac á Íslandi og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

    Það kostar kr. 2.500- kr. að vera með fyrir hvern hund en ef að sami hundur ætlar að taka þátt í bæði hlýðni brons og hlýðni 1 sama dag þá kostar kr. 3.500- og aukast þá að sama skapi möguleikarnir á að vinna titilinn "stigahæsti hundur ársins" Skráning fer fram á netfanginu stjorn@dobermann.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og lýkur skráningu kl. 00:00 á laugardagskvöld.

    Reglurnar fyrir bæði hlýðni brons og hlýðni 1 er hægt að nálgast hér http://www.dobermann.is/index.php?op...149&Itemid=182 og er góð hugmynd að lesa þær yfir fyrir prófið.
    Við hjá Rottweiler klúbb Íslands kvetjum fólk eindregið til að taka þátt!

    Með kveðju frá aðstandendum Rottweiler klúbbs Íslands

    Recent Comments Recent Comments

    Recent Blog Posts Recent Blog Posts