Recent Articles Recent Articles

    Afmælishátíð HRFÍ Fimmtudag 27 Ágúst

    Nú styttist í afmælishátíðina og skilst mér að hún verður af margvíslegum og skemmtilegum toga. Þar verður tegundakynning á sem flestum hundakynum og sölubásar. Verður þetta sett upp að tegundabásarnir verða meðfram veggjum inní sjálfri reiðhöllinni og sölubásarnir fyrir miðju, þannig að hægt verði að labba í hring til að skoða bæði tegundabása og sölubásanna.

    Svo er dagskrá allan tíman og fyrirlestrar ásamt fleirru alveg frá 17-22.30. Svo af nógu er að taka, skoða og fylgjast með. Allir ættu að finna eitthvað fyrir sitt hæfi.
    Afmælishátíðin verður haldin í reiðhöllinni í Víðidal. Meðal annars verður hægt að sjá hunda draga bíl, hlusta á margvíslega fyrirlestra, kynna sér tegundir eins og til dæmis Rottweilerinn sem verður þar á bás með hressum eigendum, og kynna sér ýmist tengt hundum og hundalífinu á Íslandi. Um að gera að láta sjá sig og taka góða skapið með!

    Recent Comments Recent Comments

    Recent Blog Posts Recent Blog Posts