Vegna vaxandi áhuga fólks að para Rottweiler hunda sína hefur borið mikið á miklu kæruleysi.
Það virðist vera svo að fólk sé ómeðvitað, eða neiti að vera meðvitað um hvað liggur bakvið hundana sína. Við erum ekki að segja að þessir hundar séu verri hundar en sá næsti, það þýðir bara ekki að þeir séu ræktunardýr. Það er í raun og veru hægt að rekja allann Rottweiler stofninn á Íslandi saman á einn eða annann hátt. Lang stæðsti hluti stofnsins er með lélegar mjaðmir eða olnboga, eða aðra heilsufarslega sjúkdóma eins og wobblers, eineistungsgen, eða útlitslega galla, sem og hvítar bringur, síðhærðir og svo margt fleira. Allt er þetta arfgengt ! Og það mjög.
Við höfum frétt af mörgum sem eru að íhuga að para hundana sína, og vitum nú ekki nöfn þeirra eigenda en vitum nöfn hundanna og við vitum það fyrir víst að margir hafa fundið rakka á tíkurnar sínar, eða tíkur undir rakkana sína, sem eru NÁSKYLD ! ÞETTA er vandamálið með óættbókarfærð got, að nú stöndum við öll frammi fyrir því að fólk heldur að hundurinn sinn sé undan vissum hundum, og næsti heldur að hann sé undan öðrum hundum en þegar á botninn er hvolft þá eru þetta hálfsystkin eða gotsystkin. Vinsamlegast leitið ráða til okkar, áður en þið komið með skyldleikagot, eða got sem er í hárri líkleika prósentu um að vera mjög heilsufarslega illa farið.
Einnig hafa eingöngu örfáir Rottweiler hundar á Íslandi farið í gegnum mjaðmamyndatökur og olnboga. Enn færri hafa farið í skapgerðarmat, vinnupróf eða verið sýndir.
Allt þetta spilar saman til að hundur sé ræktunarhæfur. Leggjum styrk okkar saman og bætum stofninn á Íslandi, hættum að brjóta hann niður með óábyrgri ræktun.
Til að átta sig á hvað er verið að reyna að ná fram með ræktun er bent á að lesa upprunastandard tegundarinnar. Það er mjög flókið ferli að ná flottu goti af Rottweiler. Sér í lagi á Íslandi þar sem að lang mestur hluti hundanna eru berar fyrir allskonar heilsufarssjúkdóma og útlitslega galla.
Ræktunarstandard tegundarinnar er svona strangur af góðri ástæðu, ástæðan er sú að Rottweiler á að vera með visst útlit, það ER EKKI NÓG að hann sé black og tan.
Vinsamlegast hafið samband við okkur og ráðfærið ykkur við okkur áður en það er tekin ákvörðun, við erum opin fyrir öllum spurningum hvað þetta varðar. Hugsið um hundana fyrst, þeirra heilbrigði og skyldleika, hafið samband áður en þið takið ákvörðun ! Og munið það, að það eru eingöngu örfáir hundar á Íslandi sem væru líklegir til að vera góðir til ræktunar.
Hafið í huga að lágmarkskröfur til að rækta Rottweiler á HEIMSVÍSU eru eftirfarandi:
- Mjaðmamyndað FRÍTT
- Olnbogamyndað FRÍTT
- KLÁRAÐ skapgerðarmat
- SÝNDUR amk 2-3x hjá misjöfnum viðurkenndum dómurum, með GÓÐANN DÓM Í HVERT SKIPTI sem undirstrikar það að þessi hundur sé tegundartíbískur og flott eintak sinnar tegundar í alla staði.
Einnig er ákjósanlegt að klára vinnupróf, bronspróf, og mörg önnur próf, enda er ROTTWEILER vinnuhundur þó hann sé einnig góður fjölskylduhundur ef alinn rétt upp. Við viljum jú rækta tegundatýbíska hunda ekki satt, enda erum við öll stolt af hinum mikla Rottweiler hundi sem við þekkjum. Einnig er gott að hafa klárað augnskoðun einnig, og gengið úr skugga um það að hundurinn sé ekki með arfgenga augnsjúkdóma.


Sections
Recent Articles
Recent Comments
Recent Blog Posts